Health, Wellness and Fitness - Reykjavikurborg, , Island
Hjá Hæfi starfar reynslumikið fagfólk á sviði endurhæfingar og heilbrigðisþjónustu: sjúkraþjálfarar, læknar, sálfræðingar, næringarfræðingar og markþjálfar. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun auk þverfaglegrar samvinnu með það að markmiði að hámarka gæði og árangur þjónustunnar einstaklingnum í hag. Okkar styrkur felst ekki síður í þeirri miklu reynslu og þekkingu sem sérfræðingar okkar hafa á sviði þverfaglegrar nálgunar og teymisvinnu en rannsóknir hafa sýnt að þverfagleg nálgun bætir árangur og um leið eykur gæði þjónustunnar. Við bjóðum einnig upp á fjölbreytt námskeið og sérhæfða hópaþjálfun undir handleiðslu þaulreyndra sérfræðinga okkar.Hæfi er staðsett í sérhönnuðu 500 fm húsnæði í Egilshöll. Í allri hönnun var lögð áhersla á að skapa hlýlegt og þægilegt umhverfi þar sem bæði starfsfólki og þeim sem sækja þjónustuna getur liðið vel.Merki Hæfi samanstendur af þremur hringjum sem tákna mismunandi tengingu við þjónustuna og lýsir áherslum okkar í þverfaglegri nálgun: líkamleg, sálfræðileg og félagsleg (bio-psycho-social). Í miðju hringanna má sjá manneskju sem er tilvitnun í sameiginlegan þátt þessara þriggja hringja-heilsu. Græni liturinn stendur fyrir vöxt, samræmi, heilsu og öryggi. Hönnuður merkis er Elsa Nielsen.Framkvæmdastjóri Hæfi er Ása Dóra Konráðsdóttir.Velkomin til Hæfi - tökum vel á móti ykkur.Netfang: mottaka@haefi.is / Sími: 5111011Fylgdu okkur á Facebook: https://www.facebook.com/Haefiendurhaefingarstod
Outlook
Typekit
Microsoft Office 365