Gagnaveita Reykjavíkur ehf. var stofnuð sem einkahlutafélag í eigu Orkuveitu Reykjavíkur 1. janúar 2007.Hlutverk Gagnaveitu Reykjavíkur er að bjóða heimilum og fyrirtækjum aðgang að gagnaflutningskerfi sem gefur kost á háhraða gagnaflutningi með þá sýn að leiðarljósi að háhraða gagnaflutningur auki lífsgæði og samkeppnishæfni íslensks samfélags. Viðskiptavinir eru bæði fyrirtæki og einstaklingar sem starfa og búa á þjónustusvæði sem nær nú frá Bifröst til Vestmannaeyja.