Higher Education - Kópavogur, , Iceland
Saga skólans í stuttu máliNýi tölvu- og viðskiptaskólinn (NTV) hóf starfsemi sína í október 1996. Stofnendur voru bræðurnir Jón Vignir og Sigurður Karlssynir.Í byrjun var skólinn að Hólshrauni í Hafnarfirði og síðar einnig í Hlíðarsmára í Kópavogi. Um mitt ár 2003 var ákvörðun tekin um að færa starfsemi skólans undir eitt þak í Hlíðarsmárann og stækka skólann þar um 4 kennslustofur. Í dag eru kennslustofur skólans 7, auk aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk.Viðurkenndur fræðsluaðiliNTV er viðurkenndur af Menntamála-og menningarmálaráðuneytinu sem fræðsluaðili og gefur nám hjá NTV einingar til stúdentsprófs. Góð reynsla nemendaNTV hefur ætíð haft það orðspor á sér að vera vinalegur og heimilislegur skóli. Nemendur hafa oft orð á að þeim líði vel í skólanum. Við vitum að flestir okkar nýnemendur koma vegna góðs umtals fyrrverandi nemenda. Í skoðanakönnun hjá nemendum árið 2017, sögðust 98% mæla með skólanum við þriðja aðila. Við erum meðvituð um þetta og er skólanum mjög mikilvægt að viðhalda því þægilega og persónulega viðmóti sem skólinn er þekktur fyrir.
Outlook
Apache
Route 53
Microsoft Office 365
Amazon AWS
Google Analytics